Umhverfisskólinn Maður og Jörð
Megin markmið:
Umhverfisskólinn Maður og Jörð hefur það sem megin markmið að gefa einstaklingnum aukin tækifæri á að læra um lögmál jarðarinnar/náttúrunnar beint frá henni sjálfri í stað þess að styðjast mestmegnis við hefðbundna skólastofukennslu frá kennurum, kennslubókum og tölvum eins og tíðkast hefur í flestum skólum. Umhverfisskólinn byggir á þeirri sýn að athuganir framkvæmdar af nemandanum sjálfum geti veitt honum dýpri og raunverulegri skilning á hinum flókna veruleika lífsins og hvernig okkur ber að umgangast hann. Nemendur, og þá sérstaklega börn, eru forvitnir um sitt umhverfi. Kennslan verður því áhugaverðari, meira hvetjandi og skilvirkari þegar þeim er gefinn kostur á að tileinka sér þekkingu frá náttúrunni með þessum hætti. Með nánu sambandi á milli menntunar einstaklingsins og hans náttúrulega umhverfis, munum við ná að skapa sjálfbært samfélag eins og okkur ber nauðsyn til. Meðvitundin um þessa hluti þarf að byrja með yngstu kynslóðinni og því verður sérstök áhersla lögð á hana við þróun skólans.
Með þessum áherslum á athafnatengt nám er ekki verið að draga úr gildi bóklegs náms og nútíma kennsluhátta: Þessi tvö kennsluform byggja hvort á öðru og markmið umhverfisskólans er þannig að koma á ákveðnu jafnvægi á milli þeirra í samræmi við þarfir einstaklingsins og samfélagsins. Þannig mun hann ávallt leitast við að samlagast og verða hluti af hinu hefðbundna skólaumhverfi. Í rauninni er verið að tala um að stækka grunnskóla svæðisins þannig að þeir nái utan um hið náttúrulega umhverfi og að einstaklingurinn þannig geti verið í nánu sambandi við náttúruna/jörðina í allri sinni skóla- og lífsgöngu.
Hlutverk undirskóla:
Undir umhverfisskólann heyra sérstæðir skólar helgaðir tilteknum umhverfis- og menningarfyrirbærum á norðurlandi. Laxárskólinn og Hvalaskólinn eru hugsaðir sem slíkir og hafa þeir nú þegar hafið göngu sína. Með tíð og tíma eiga vonandi fleiri slíkir undirskólar eftir að líta dagsins ljós þannig að til verði heildstæður umhverfisskóli sem spannar fjölbreytni í náttúru- og menningarfari svæðisins. Hlutverk undirskólanna er einnig að bjóða einstaklingnum upp á val og sérhæfingu í samræmi við þarfir hans og áhugasvið.
Nafngift og hugmyndafræði:
Umhverfisskólinn byggir á þeirri grundvallarskoðun að jörðin og allt hennar líf, sé hinn raunverulegi grunnskóli mannsins. Það eru mörg rök sem renna stoðum undir slíka sýn. Þar ber fyrst að nefna að öll okkar þekking er mótuð af þeim möguleikum og takmörkunum sem jarðlífið hefur sett okkur. Með öðrum orðum, mannvitið er sprottið upp af reynsluskóla jarðarinnar. Eins og nafn skólans gefur til kynna (Maður og Jörð) er lífið á jörðinni hnattræn heild sem að okkur ber að umgangast með auðmýkt og virðingu í samræmi við takmarkaða þekkingu okkar á þeim flókna veruleika sem hún byggir á. Jarðheimurinn er þó vissulega deildskiptur - eins og mikill breytileiki í umhverfi og menningu segir til um - og er það hlutverk undirskólanna að taka mið af því. Síðast, en ekki síst: Reynslan hefur sýnt okkur að einstaklingurinn þarf að vera í nánu persónulegu sambandi við jörðina/náttúruna til að geta þroskað með sér heildstæða samfélags- og náttúruvitund. Fyrsta æviskeiðið er einstaklingurinn hvað móttækilegastur fyrir áreiti frá sínu umhverfi og er það því sérstaklega mikilvægt í þessu samhengi. Af þessu má sjá að jörðin/náttúran er okkar grunnskóli í dýpstu merkingu þess orðs.

