Oft heyrast hugtökin umhverfistúlkun og náttúrutúlkun nefnd þegar rætt er um umhverfisfræðslu eða fræðslu á umhverrfis- og náttúrustígum. Náttúrutúlkun er þýðing á enska orðinu „interpretation”. Náttúrutúlkun er aðferð til að auka tilfinningu fólks fyrir náttúrunni, breyta viðhorfi þess og framkomu við náttúruna (Sigrún Helgadóttir 1990:37). Þegar við tölum um umhvefistúlkun erum við búin að víkka hugtakið, t.d. bæta manninum og manngerðu umhverfi við og tölum þá gjarnan um umhverfisfræðslu. Í umhverfisfræðslu snúast fræðin um umhverfið og áhrif mannsins á umhverfið og öfugt (Sigrún Helgadóttir 1990:38).
Umhverfistúlkun hefur einnig verið skilgreind sem ákveðið form fræðslu sem hefur það markmið að fólk læri að skilja gildi náttúrunnar og meta verðmæti hennar með því að nota raunveruleg viðfangsefni frekar en að upplýsa. Að fólk byggi á eigin reynslu og læri að bera virðingu fyrir umhverfinu (Tilden 1977:8).
Gott er fyrir kennara að afla sér þekkingar um staðhætti en ekki má þó líta fram hjá því að samkvæmt kenningum umhverfistúlkunar er fræðileg þekking ágæt, svo langt sem hún nær, en ekki endilega sú mikilvægasta, (Sigrún Helgadóttir 1990: 37-38). Kennarar geta kennt í anda umhverfistúlkunar, að upplifa og njóta þess sem náttúran hefur upp á að bjóða í heild sinni (Cornell 1998:15). Bein reynsla og upplifun er stór kostur allra ferða út fyrir veggi skólans sem gefur kennurum og nemendum „lifandi” grunn til byggja nám sitt á þegar heim er komið. Umræður, og tjáning ásamt íhugun og upprifjun er stór hluti af námi grunnskólabarna og leið til að vekja skilning og tengsl við fyrra nám (Jordet 1998:25 og Hafþór Guðjónsson 1993) og því ættu kennarar að líta á allar ferðir út fyrir veggi skólans sem tækifæri til að nálgast þennan góða grunn, sem geta gert námið lifandi í huga nemenda.
Miðað við það sem fram hefur komið má ætla að umhverfisstígur sé umgjörð, sem hentar vel fyrir umhverfistúlkun og stígurinn við Laxá er kjörinn staður til að túlka umhverfið í Þingeyjarsýslum og læra í anda umhverfismenntar.
2007 © Sigrún Þórólfsdóttir

