Umhverfisskynjun

 

Viðfangsefni: Umhverfið við Laxá.

Aldur: Miðstig.
Námsgreinar: Náttúrufræði, lífsleikni og myndmennt.
Tími: um 15-20 mínútur + eftirvinna.


Markmið

 Að nemendur

      - læri á og kynnist umhverfi sínu

      - öðlist umhyggju fyrir umhverfinu

      - læri að við skynjum og túlkum umhverfið á mismunandi hátt

- geti túlkað niðurstöður sínar á myndrænan og skriflegan hátt.

 Stutt verkefnalýsing

 Nemendur skynja umhverfið með hlustun og lýsa því.

 Kennslugögn

 Vinnublöð, skriffæri og myndavél.

 Framkvæmd / vinna

Forvinna (undirbúningur / kveikja):Umræður um heyrn og sjón og hve heppin við erum að hafa þessi skynfæri. Hvernig lýsum við því sem við heyrum og sjáum.

Á vettvangi: Þegar nemendur koma á svæðið er þeim bent á hve umhverfi árinnar er fallegt og þau hvött til að taka að lágmarki tvær myndir af umhverfinu, eina nærmynd og eina fjærmynd. Benda þeim á Laxárvirkjun og Grenjaðarstað ásamt aðra bæi sem sjást. Benda þeim einnig á gróðurinn.

Síðan setjast nemendur niður og gera verkefnið (sjá nemendablað).

Eftirvinna (úrvinnsla / ígrundun): Þegar heim er komið bera hóparnir saman niðurstöður sínar og gera sameiginlegt súlurit yfir það sem heyrðist. Myndirnar eru prentaðar út og útbúið veggspjald með umhverfislýsingu við Laxá í myndum og orðum. Eins má láta þau mála saman umhverfið á stórt blað og hengja upp á vegg.

 Námsmat

 Fylgjast með krökkunum á vettvangi og meta úrvinnslu í vinnubók.

 Verkefni

 Skynjun I

 Skynjun II  - eftirvinna

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning