Umhverfisskólinn Maður og Jörð er útiskóli eða bara umhverfi sem er skipulagt á þann hátt að nemendur og kennarar geta nýtt sér það til útikennslu og útináms.
Laxárskólinn er skipulagður sem umhverfisstígur á bökkum Laxár í Aðaldal, þar sem áhersla er lögð á að nemendur læri um lífríki árinnar í anda útináms.
Útiskóli
Útikennslu má koma við í hvernig skóla sem er, en er gjarnan tengd við útiskóla. Það er ekki heldur auðvelt að skilgreina útiskóla nákvæmlega því hann má útfæra á þann veg sem hentar hverjum og einum (Jordet 1998:9).
„Útiskóli er það þegar hluti af kennslunni er fluttur út í nánasta umhverfi skólans og reglulega eru unnin verkefni utan skólastofunnar.
Útiskólar gefa nemendum tækifæri til að nota öll skilningarvit sín og fá persónulega og beina reynslu af raunveruleikanum. Útiskólar veita nemendum einnig tækifæri til athafna, á forsendum námsgreinanna, að þroskast og leika sér af sjálfsdáðum, finna til forvitni, ímyndunar, upplifunar og samkenndar.
Útiskóli þýðir samþættingu námsgreina í kennslu, þar sem athafnir úti og inni eru í meira samhengi, því nemendur læra um raunveruleikann í raunveruleikanum, þ.e. um náttúruna í náttúrunni, um samfélagið í samfélaginu og um sitt nánasta umhverfi í sínu nánasta umhverfi.” (Jordet 1998:24).
Útikennsla
Það er kannski ekki öllum ljóst hvað útikennsla er enda hugtakið útikennsla svo vítt að erfitt hefur reynst að finna eina haldbæra skilgreiningu. Útikennsla getur náð yfir alla menntun sem á sér stað utan húss, hvort sem það er í þéttbýli eða dreifbýli, í menningarlegu samfélagi eða villtri náttúru (Gair 1997:2).
Útikennsla er góður grunnur til að byggja frekara nám á. Útikennsla þarf að vera fullgild kennsla og á að skila árangri til jafns við aðra kennslu. Samþætting námsgreina, samvinna, sjálfstæð vinnubrögð, umhverfismennt, umhverfisstígur og útikennsla eru allt hugtök sem tilheyra útikennslu og að sjálfsögðu miklu fleiri (Jordet 1998:24 og Braund & Reiss 2005:5).
Útikennsla er fullgild kennsla og mikilvægt að kennarar séu vel undirbúnir. Kennarinn þarf að vera leiðbeinandi, túlkandi og spyrjandi eftir því hvað við á og skerpa sýn á samhengi, vekja áhuga og efla umræðu og tjáningu. Útikennsla kallar á skipulagningu og mikla útiveru í hvernig veðri sem er.
Það er margt sem þarf að huga að þegar kennd er útikennsla. Oft er farið út með mikinn fjölda, það má enginn týnast, það má enginn slasast vegna óvarkárni eða glæfralegra athafna, það má enginn koma leiður heim vegna þess að ferðin var illa eða ekkert skipulögð. Þeir sem fara með hóp út í náttúruna þurfa að vera meðvitaðir um eigin getu og hafa kunnáttu til að kenna það sem verkefnið býður uppá. Þeir mega ekki ana út í einhverja vitleysu án þess að hafa skipulagt ferðina af kostgæfni og kannað hættur sem geta leynst á svæðinu (Gair 1997:14-19).
En af hverju ættu kennarar að kenna útikennslu?
10 góðar ástæður þess að kenna útikennslu:
1. Betri tengsl við viðfangsefni kennslunnar
2. Betra nám
3. Fjölbreyttari kennsla
4. Betri skilningur á náttúru, vísindum og umhverfi
5. Betri heilsa
6. Betri samhæfing hreyfinga
7. Fjölbreyttar námsaðferðir
8. Betri félagslegur skilningur
9. Betri þekking á nánasta umhverfi
10. Meiri bein reynsla
(COPE 2005)
Nútímabörn þekkja fæst raunveruleikann, eftir langa setu á skólabekk eyða mörg þeirra flestum frístundum sínum fyrir framan sjónvarp eða tölvu. Menn eru farnir að hafa áhyggjur af heilbrigði barna og unglinga, sérstaklega af hreyfingarleysi og offitu af völdum þessara breyttu lífshátta (COPE 2005).
Auk þess hefur útikennslan góð áhrif á nemendur og skilar ánægðari og rólegri börnum sem eiga auðveldara með að lynda í frímínútum þegar þau koma aftur í skólann (Kristiansen 2003). Róleg og glöð börn eiga auðveldara með að einbeita sér og einnig hafa verið gerðar heilarannsóknir sem sýna að úti fái nemendur meira af þeim áreitum sem heilanum er nauðsynlegt að fá til að þroskast (Hurtig 2002).
Umhverfisstígur
Þar sem enginn getur sagt nákvæmlega hvað útiskóli er og hægt er að útfæra hann á þann veg sem hentar hverjum og einum er hægt að segja að kennsla á umhverfisstíg geti verið ríkur þáttur í starfi útiskóla, allavega má vel nýta flesta þætti útiskóla við útikennslu á umhverfisstíg.
Umhverfisstígur er afmörkuð leið sem nemendur fara eftir, ýmist einir eða í hópum, með kennara eða án. Afmarkaður stígur gefur möguleika á stöðvarvinnu, að numið sé staðar á ákveðnum stöðum til að skoða, upplifa eða njóta þess sem stígurinn hefur upp á að bjóða, eða vinnu á staðnum. Umhverfisstígur bíður upp á aðstæður eða umhverfi þar sem nemandi getur menntast, getur nýtt sér umhverfið og náttúruna, til að öðlast þekkingu. Umhverfisstígur er kjörinn vettvangur fyrir útikennslu.
Það er ekki nóg að kennarinn undirbúi sig vel, það þarf líka að undirbúa börnin vel áður en farið er út, þau þurfa að hafa ramma til að fara eftir, vita til hvers er ætlast af þeim og þekkja reglurnar. Hér á þessari síðu geta kennarar nálgast ýmsar upplýsingar um það hvernig best sé að skipuleggja útikennslu og útinám þar sem allt er tengt markmiðum og námsmati.
Verið óhrædd að fara með nemendurna út, það er að mörgu leiti mun auðveldara að kenna þeim í náttúrunni þar sem þau njóta samvista við hvort annað á nýjan hátt og upplifa fjöldan allan af framandi hlutum.
2007 © Sigrún Þórólfsdóttir

