Þema er í raun stjórnunaraðferð til að stýra námi. Þegar unnið er með þema eru fundnir nokkrir áhersluþættir í náminu, sem hver um sig getur staðið einn eða nokkrir saman sem heild og í samhengi með öðru. Þema getur hvort heldur verið lítið að umfangi eða stórt, það getur innihaldið eina námsgrein eða legið þvert á námsgreinarnar (Foros 1998;13).
Þema kallar á samþættingu námsgreina, sem hefur verið skilgreint sem heilstætt viðfangsefni, sem nemendur vinna ýmist einir eða í hópum að athugunum og glímu við ákveðin úrlausnarefni. (Waters 1982, sjá Lilja M. Jónsdóttir 1996:9). Þemaverkefnin eru bæði almenn og sértæk og ákveðin af kennurunum (Lilja M. Jónsdóttir 1996:9). Þema þarf að skilgreina, en hvað er gott þema? Þema þarf að vera gefandi, bæði fyrir kennara og nemanda.
Þema þarf að hreyfa við okkur, hvort sem það er til að auka skilning eða gildi. En þema verður að skiljast sem heild, þar sem samhengið milli efnisgreina og fagsins í heild er auðséð. Mikilvægt er að samhengið sé sterkt – að ólíkir hlutar þemans styrki þýðingu hvers annars. Einkenni af góðu þema er að það myndar augljós tengsl milli ólíkra faga þannig að hvert fag er nauðsynlegt fyrir heildina og fær eðlilegt hlutverk sem verkfæri eða tjáningarmáti (Foros 1998;24).
Áhersluþættir þema eiga að vera auðsjáanlegir allan tímann sem þemað varir. Það rammar inn kennsluna, hefur áhrif á verkefnaáhuga, vinnugleði og heimildaleit. Bæði kennarar og nemendur finna að það er léttara að vinna þegar áhersluþættir þemans er augljósir (Foros 1998;64).
Með þemanámi er hægt að nálgast ýmis félagsleg markmið eins og til dæmis að þjálfa nemendur í samvinnu, fá nemendur til að skilja að samhjálp og sanngirni auðveldar starfið, að þeir læri hvað felst í málamiðlun, að þeir læri að hlusta á skoðanir annarra og taki mark á þeim, að nemendur læri að taka gagnrýni og geti gagnrýnt á uppbyggilegan hátt (Lilja M. Jónsdóttir 1996:10).
Í þemanámi geta kennsluaðferðir verið mjög fjölbreyttar, þar sem þær fylgja svipuðum skrefum og leitaraðferðir, efnis- og heimildakönnun eða umfangsmikil hópverkefni (Ingvar Sigurgeirsson 1999:150-151).
Umhverfisstígur hentar vel þar sem unnið er með þemavinnu og umhverfisstígurinn við Laxá gæti auðveldlega tengst þemavinnu um vatn, veiði, umhverfi, gróður, fugla og margt fleira. Vatnið kæmi afar sterklega til greina þar sem mörg verkefnin tengjast vatninu eða lífríki þess á mjög beinan hátt og öll verkefnin eru í nánasta umhverfi straumvatns.
2007 © Sigrún Þórólfsdóttir

