Viðfangsefni

Lýsingar á viðfangsefnum (stöðvum) sem tengjast svæðinu

1. Heimastöð Kennsluáætlun, leiðbeiningar og námsefni.

Þetta er einskonar stjórnstöð, eða upphafs- og endastöð þeirra viðfangsefna sem unnið er með á stígnum. Eins er þetta kaffi- og matstofa nemenda.

Verðugt markmið er að gera heimastöðina þægilega og notalega, þar sem nemendur geta hlýjað sér við opinn eld eða farið í skjól. Endilega leifið nemendum að tjalda. 

Aðalmarkmiðið er að kveikja opinn eld og læra að umgangast hann, hér vinna nemendur verkefni um skyndihjálp, umhverfisskynjun, tjöldun, gróðursetningu, leiki og margt fleira.

2. Skyndihjálp o.fl. Kennsluáætlun, leiðbeiningar og námsefni. 

Hér eru ýmis verkefni er lúta að skyndihjálp og útivist 

Aðalmarkmiðið er að fá að kynnast skyndihjálp við raunverulegar aðstæður.

3. Stangveiðin Kennsluáætlun, leiðbeiningar og námsefni.

Við ána eru vanir veiðimenn sem aðstoða nemendur við stangveiði. Meðan einn úr hópnum veiðir, nýta hinir tímann og vinna önnur verkefni sem fylgja stöðinni, t.d. við sýnatökur, straumhraðamælingar og aðrar mælingar. 

Aðalmarkmið verkefnisins er að fá að kynnast stangveiði og eðli straumvatns auk þess að mæla straumhraða og fá að kynnast vísindalegum aðferðum.

Gæta þarf fyllstu varúðar og þurfa allir vera í þar til gerðum öryggisbúnaði þegar vaðið er út í ána.

4. Sýnataka Kennsluáætlun, leiðbeiningar og námsefni.

Hér kanna nemendur lífríki árinnar með ýmsum öðrum hætti en stangveiði. Þetta verkefni hentar vel með stangveiðinni, meðan beðið er eftir þeim sem er úti í ánni. 

Aðalmarkmiðið er að fá að kynnast vísindalegum aðferðum við sýnatökur og kanna hvaða lífríki finnst í ánni.

5. Fuglar Kennsluáætlun, leiðbeiningar og námsefni.

Þetta fuglaskoðunarverkefni er aðlagað að fuglalífi við Laxá, nemendur  kanna og reyna að greina fuglategundir.

Aðalmarkmiðið er að æfa sig í að sjá og greina fugla.

6. Umhverfið Kennsluáætlun, leiðbeiningar og námsefni.

Hér fá nemendur að njóta friðsældar staðarins og læra að skynja náttúruna.

Aðalmarkmið verkefnisins er að læra að skynja umhverfið og mikilvægi skynfæra mannsins.

 

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning