Viðfangsefni: Rannsóknir á urriðanum í Laxá
Aldur: Miðstig
Námsgreinar: Náttúrufræði og lífsleikni.
Tími: 30 mínútur á hvora stöng í ánni.
Markmið
Að nemendur
· leyfa nemendum að rannsaka lífríki Laxár
· kynnist stangveiði af eigin raun við alvöru aðstæður
· öðlist virðingu fyrir kröftum straumvatns, skynji aðlögun að vatni
· læri að bera virðingu fyrir lífinu, að stutt er á milli lífs og dauða og sjái
hvernig fiskur er aflífaður á sem kvalaminnstan hátt
· læri um lifnaðarhætti fiska í vatni og að fiskur er partur af fæðukeðju
· læri um ytri og innri gerð fiska, lögun og eiginleika
· kynnist vísindalegum vinnubrögðum, einkennum tilrauna og athugana
· framkvæmi fjölbreytilegar athuganir og nota til þess mælitæki og viðeigandi
búnað
· geri sér grein fyrir þýðingu þess að mælingar séu nákvæmar
· geti túlkað niðurstöður sínar á myndrænan og skriflegan hátt.
Stutt verkefnislýsing
Nemendur veiða lax eða urriða á stöng í Laxá, einni af bestu laxveiðiá landsins, undir leiðsögn góðra veiðimanna.
Kennslugögn
Tafla og túss. Vinnublöð, smjörpappír og blýanta. Myndavél, veiðistangir, flot og flugur. Vöðlur, björgunarvesti, hníf til að gera að fiski og plastpoka undir veiðina. Málband, flot fyrir straumhraðamælinguna og tímatökutæki.
Sjá nánar upptalningu á verkefnablöðum í kennsluefni.
Framkvæmd / vinna
Forvinna (undirbúningur / kveikja): Myndbönd um fiska og kynning á verkefni. Kynning á vistkerfi og lífríki eða líffélagi, fæðukeðju og vef. Innlögn um fiska; útlit, hegðun og aðlögun (bókin Lífríki í fersku vatni eftir Stefán Bergmann).
Kenna þarf nemendum að mæla straumshraða. Útskýra á töflu. Kynna nemendum markmið námsefninsins. Í þessu verkefni má gjarnan láta nemendur koma sjálfa með flot að heiman og skoða hvort lögun skipti máli.
Á vettvangi: Þegar nemendur koma að árbakkanum er þeim bent á strauminn í ánni, að létt sé að detta ef þau passi sig ekki. Þeim er gerð grein fyrir mikilvægi þess að vera í vöðlum og með björgunarvesti. Benda skal á að nemendur velti þessu fyrir sér á meðan þau bíða á bakkanum. Nemendur geta einnig velt fyrir sér hvað af eiginleikum fiska þau þyrftu að hafa til að geta lifað í vatninu. Síðan leiðbeinir aðstoðarmaður (vanur veiðimaður) einn nemanda í einu við að veiða, en hinir fylgjast með og njóta útiverunnar ásamt því að mæla straumhraðann og reyna við ýmsar þrautalausnir.
Þegar fiskur veiðist er mikilvægt að mæla hann (lengd og þyngd) og merkja. Gott er að nemendur hafi með vinnublað eða úti-vinnubók en einnig þarf að skrá með blýanti á smjörpappír hver veiddi fiskinn og hvar (veiðisvæði) og láta í plastpokann með fiskinum.
Það getur verið kalt að bíða á bakkanum og því er mælt með að kennarar séu viðbúnir því að fara í leiki, t.d. klappleiki sem ná oftast hita í leikmenn en annars bendi ég kennurum bara á að skoða leikjavefinn hans Ingvars.
Sjá verkefnalýsingar.
Eftirvinna (úrvinnsla og ígrundun): Þegar heim er komið er fiskurinn skoðaður og krufinn. Fyrst þarf kennarinn að stýra umræðum um hvað þau upplifðu við veiðina og spyrja opinna spurninga um fiska. Leiðbeiningar (spurningar og svör) fylgja bæði með skoðun og krufningu á fiski sem gott er að nýta með vinnubókinni.
Námsmat
Vinnblöð/bók nemenda er metið til einkunnar ásamt fjölbreyttu mati kennara (sjá námsmat).
Verkefni
Kennsluleiðbeiningar

