Skyndihjálp


Viðfangsefni: Æfa skyndihjálp

Aldur: Miðstig


Námsgreinar:
Lífsleikni


Tími: Eftir hentugleika, gott uppfyllingarefni.

 


Markmið

Að nemendur

·    Kynnist skyndihjálp við krefjandi aðstæður

.    læri helstu atriði skyndihjálpar s.s. að stöðva blæðingu og koma sjúklingi í 
     læsta hliðarlegu.

·    öðlist virðingu fyrir kröftum náttúrunnar

 ·   og læri að skilja mikilvægi þess að líkaminn kólni ekki

·    efli tjáningu og samskipti

Stutt verkefnalýsing

Verkleg skyndihjálp og umræður. Hópurinn hjálpast að við að vinna skyndihjálparverkefni á staðnum.

Kennslugögn

  •  Myndbönd um slys eða slasaða af vefnum.

  •  Glærur og umræður.

  •  Kennsluefni og verkefni af þessum vef.

  •  Plöstuð verkefni fyrir nemendur.

  •  Sjúkrakassi og nægilegt af umbúðum til æfinga.

Stuðningsefni

„Getur þú hjálpað." Bæklingur um skyndihjálp fyrir almenning, gefinn út af RKÍ

RKÍ hefur einnig gefið út veggspjald sem gott er að hengja upp í stofu nemenda þegar verið er að vinna með skyndihjálp.

Einnig vil ég benda kennurum á að RKÍ hefur gefið út nokkuð af kennsluefni, bókum og myndböndum ætlað grunnskólanemum (sjá heimasíðu rkí)

Framkvæmd / vinna

Forvinna (undirbúningur / kveikja): Myndbönd um slys eða hjálp í viðlögum. Umræður um mikilvægi þess að geta veitt fyrstu hjálp þegar langt er í næsta sjúkrahús.

Fara með þeim í skyndihjálp. Leggja mesta áherslu á greiningu hins slasaða og almenna skyndihjálp, læsta hliðarlegu, meðferð brunasára og spelkun brota.

Kenna má ýmis atriði skyndihjálpar og leifa nemendum að vinna með efnið á ýmsan máta. T.d. stöðvarvinna þar sem hver stöð kennir einn þátt en glærur má finna á síðunni „Grundvallaratriði í skyndihjálp".

 Á vettvangi: Verkefni þar sem þau þurfa ýmist að leika slasaða eða hlúa að slösuðum.

Námsmat

Sjálfsmat er mjög gott, en áframhaldandi námi í skyndihjálp með úttekt og skírteini frá fagaðila væri metnaðarfullt markmið hvers skóla.

Kennsluefni og verkefni

Grundvallaratr. Efni til stuðnings kennurum sem vilja kenna skyndihjálp, lesefni og glærur.

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning