Laxárskólinn

Vatnasvæði Laxár í Þingeyjarsýslu ásamt lífríki þess er skóli frá náttúrunnar hendi og endurspeglar nafnið Laxárskólinn þá staðreynd. Í aldanna rás hafa margir numið við þennan skóla, sérstaklega þær fjölmörgu kynslóðir sem lærðu að byggja tilveru sína á umhverfinu. Með tímanum hefur þetta breyst og ljóst að Laxá hefur misst sinn sess sem mikilvæg uppeldisstofnun fyrir nærsamfélagið: Á skólagöngu sinni nýta börn og unglingar mjög takmarkað vatnasvæði Laxár, eða önnur náttúrurík svæði í umhverfinu, og má til sanns vegar færa að það bitni á möguleikum þeirra til að þroska með sér heildstæða náttúru- og félagsvitund. Með hliðsjón af þessu hefur verið ráðist í lagningu umhverfisstígs við Laxá (Hraunsstíginn) sem hefur það hlutverk að gera grunnskólanemum á svæðinu kleift að nema náttúru Laxár með eigin athugunum þegar lífríki hennar er í blóma og er Laxárskólinn þannig orðinn hluti af grunnskólanum. Markmiðið er að leggja fleiri stíga, sniðna að mismunandi aldurshópum og viðfangsefnum, þannig að skólinn í framtíðinni nái til allra aldursstiga og lífríkis/umhverfis vatnasvæðisins í heild sinni.

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning