Kennsluleiðbeiningar

með stígnum
 

Viðfangsefni: Ýmis verkefni af stígnum.


Aldur: miðstig.


Námsgreinar: Samþætting ýmissa greina með aðaláherslu á náttúrufræði og lífsleikni.


Tími: Sjá hvert einstakt verkefni

 

Markmið
Ásamt markmiðum útikennslu og markmiðum sem fylgja hverju verkefni eru ýmis þekkingar-, viðhorfs- og leiknimarkmið sem gott er að miða við.

Þekkingarmarkmið: Að nemendur
·  kynnist búsvæðum og lífríki ferskvatns af eigin raun
·  framkvæmi fjölbretilegar athuganir og noti til þess mælitæki og viðeigandi
   búnað
·  geri sér grein fyrir þýðingu þess að mælingar séu nákvæmar
·  eflist í færni og sjálfsöryggi við öflun gagna og lausn fjölbreyttra verkefna
·  læri að skynja umhverfið
·  kynnist fiskveiðum í alvöru laxveiðiá
·  kynnist og læri um hugtök varðandi hryggdýr og sérstaklega fiska
·  læri um aðlögun dýra, viti hvernig fiskar hafa aðlagað sig að lífi í vatni
·  geti nefnt 5 tegundir íslenskra ferskvatnsfiska

Viðhorfsmarkmið: Að nemendur
·  geri sér grein fyrir möguleikum og takmörkunum á söfnun gagna
·  læri að meta það sem þau og aðrir skapa
·  læri að njóta þess sem í kringum þau er
·  kynnist og læri að bera virðingu fyrir vísindalegum vinnubrögðum,
   einkennum tilrauna og athugana
·  viti að hægt sé að beita mismunandi aðferðum við að kanna sama
   hlutinn/atburðinn

Leiknimarkmið:  Að nemendur
·  eflist í hópavinnu, í því að tjá sig fyrir framan aðra, taki tillit til hvers
   annars og sýni vilja til sköpunar í ýmsum tilgangi
·  eflist í fínhreyfingum og sköpunarhæfni ásamt framsögn og tjáningu
·  þjálfist í notkun hugtaka og geti tjáð sig um hugmyndir tengdar
   námsefninu

Staðsetning
Umhverfisstígurinn liggur meðfram bökkum Laxár, í landi Hrauns í Aðaldal, og má aka eða ganga niður að honum frá Hraunsrétt og jafnvel niður að ánni.

Stutt lýsing
Farið er með rútu að morgni og keyrt að Hraunsrétt, þaðan er farið niður að Laxá og unnið við valin verkefni sem tengjast stígnum. Megináhersla er lögð á vistkerfi Laxár þar sem lífríkð er skoðað á ýmsan hátt. Vettvangsferðin getur verið mjög yfirgripsmikil og eru þá bæði forvinna og eftirvinna að sama skapi mikil, en einnig má velja úr einstök verkefni og stytta þar með alla vinnu við stíginn. Þar sem þessi stígur kostar bæði rútu og góðan undirbúning mæli ég eindregið með því að nýta stíginn eins vel og aðstæður leyfa og taka fyrir eins mörg verkefni og tími og veður gefur kost á. Ef ekki eru tekin öll verkefnin má nýta á eða læk í næsta nágrenni við skólann til að klára það sem ekki næst að klára við Laxá. Við Borgarhólsskóla mæli ég eindregið með Búðaránni, en þar sem Hafralækjaskóli er nú staðsettur í Aðaldal og ekki svo ýkja langt að ganga að Laxá væri kjörið að nýta nýtt svæði í Laxá til frekari vinnu.

Kennslugögn og námsgögn
Sjá efni sem fylgir hverju verkefni, eða verkefnabanka.

Einnig eftirfarandi vinnubækur:  Feltbók   Verkefnamappa  

Stuðningsefni
- Lífríkið í fersku vatni eftir Stefán Bergmann (1999)
- Fuglar eftir Hrefnu Sigurjónsdóttur og Valbjörgu Jónsdóttur(1993)
- Lífríkið í sjó eftir Sólrúnu Harðardóttur (2005); kaflann Fiskar í sjó.
- Handbækur um fugla
- Handbækur um íslenska ferskvatnsfiska
- Kennslubækur um vistfræði, fæðukeðjur og fæðuvefi.
- Ýmis myndbönd sem finna má á bókasöfnum
- Ýmis stutt myndbrot sem finna má á veraldarfefnum og námsvefi um útikennslu (sjá t.d. myndbandaskrá).

Hugtök
Búsvæði, lífríki, vistkerfi, gróðurfar, vatnafar, straumshraði, flokkun lífvera, þörungar, svifdýr, liðormar og fleiri hópar vatnadýra. Tegundaheiti þeirra fuglategunda sem finnast við Laxá og jafnvel víðar. Lax, urriði og aðrar ferskvatnsfiskategundir. Heiti líkamshluta og líffæra á fiskum. Eldur, eldiviður, hiti og bruni. Skyndihjálp, samvinna og gleði og eflaust fleira.

Framkvæmd / vinna
Forvinna (undirbúningur / kveikja): Við undirbúning mæli ég með vinnu í bókinni „Lífríkið í fersku vatni” eftir Stefán Bergmann og  einnig í bókinni „Fuglar” eftir Hrefnu Sigurjónsdóttur eða öðru sambærilegu efni ásamt myndböndum eða stuttum myndbrotum. Myndbönd ásamt skemmtilegum umræðum eru ágætis kveikja. Þó tillögur að kveikjum séu með hverju verkefni er ávallt best að kennarinn noti ímyndunaraflið og finni út hvaða kveikja henti best sínum nemendum, því hvað hentar fer að sjálfsögðu mikið eftir áhuga nemendahópsins og hann þekkir kennarinn best. Með einhverjum verkefnum fylgir síðan kennsluefni sem gæti nýst með öðru efni eða eitt og sér.

Tillögur að undirbúningi:
 •   Kennari kynnir svæðið sem taka á fyrir í verkefninu og sýnir nemendum kort af svæðinu á tjaldi eða dreifildi.

•   Kennari kynnir verkefni sem nemendur eiga að vinna og útskýrir skipulag vinnunnar.

•   Nemendur þurfa að lesa sér til og stefna að þeim markmiðum sem sett eru fyrir ferðina. Bókin Lífríki í fersku vatni er skoðuð lauslega og bent sérstaklega á myndir (t.d. eftirfarandi):
     bls. 8: Laxá 
     bls. 17: Nemendur að taka sýni 
     bls. 18: tæki til að nota við athuganir. 
     bls. 27: Mýstrókur við Mývatn (svona er stundum við Laxá) 
     bls. 27-28: Lífsferill rykmýs (ath. lirfustigið getur fundist) 
     bls. 29: benda á að vorflugulirfur geti fundist og sjást vel 
     bls 27-32: ýmis smádýr sem finnast í vatni

•    Nemendur útbúa lista yfir áhöld og tæki sem þarf að taka með í vettvangsferðina, lista sem hægt er að bæta við eftir þörfum.

•   Kynna þarf fyrir nemendum að þetta sé viðamikil ferð sem þarf góðan undirbúning og skemmtileg vinna sé síðan í framhaldinu þegar heim er komið. Nemendur þurfa að skila verkefnum og útbúa möppu að vinnu lokinni sem verði metin til einkunnar ásamt vinnu á vettvangi. Eins koma nemendur til með að meta sjálf eigin vinnu og annarra.

•   Skipta nemendum í hópa (3 - 4 í hóp), útskýra samvinnu og skil, markmið og námsmat.

•   Nemendur koma með eldivið úr smíðastofu eða að heiman. Vinnublöð og skriffæri (blýanta) og útivinnubók (sjá Feltbók).

•   Kennari frá skóla finnur til áhöld: myndavélar (upptökuvél og ljósmyndavél), vinnublöð, spjöld, plastpoka blýanta og túss. Gott er að hafa með stunguspaða ef laga þarf eða útbúa nýtt eldstæði.

•   Kennari frá náttúrustofu kemur með: auka háfa, sprautuflöskur, bursta, dollur og fötur, plastpoka, málband, vöðlur og allt sem lýtur að veiði.

Hafa aðgengilegt eftir vettvangsferð: greiningalykla, víðsjár, smásjár og tilheyrandi tæki (petrínskálar, gler, dropateljara og tangir).

Minna þarf nemendur á og leggja mikla áherslu á klæðnað við hæfi; hlý föt, hlífðarfatnað, húfu, vettlinga og stígvél, auk þess að gott sé að taka með aukaföt ef þau detta í ána. Gott er ef kennarar hafa með teppi ef hlúa þarf að nemendum af einhverjum ástæðum.

Eftirvinna (úrvinnsla og ígrundun): Umræður um upplifun og reynslu nemenda ásamt vinnu við verkefnin.

Námsmat
Verkefnamappa og fjölbreytt námsmat (sjá námsmat).

Verkefnin
Hér að neðan má finna hnappa inn á kennsluáætlanir með hverju verkefni og þar má einnig finna ýmis verkefna- og vinnublöð sem hægt er að prenta út.

Heimastöð Skyndihjálp o.fl. Stangveiðin Sýnataka Fuglar Umhverfið

 

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning