Hvalaskólinn

Talið er að hvalirnir hafi "komið" til jarðarinnar fyrir um 50 milljónum árum síðan og má segja að þeir, og þeirra líkar, hafi ráðið ríkjum á víðáttum hafsins allt þangað til maðurinn kom til sögunnar og fór að helga sér þær. Eins og aðrar lífverur jarðarinnar, lifa þeir nú á náð mannsins en gengið var nærri mörgum tegundum þeirra í kjölfar tæknibyltinga í veiðunum síðustu aldirnar. Frá því að líta á hvalina sem einungis hráefni til matar og iðnaðar, í formi kjöts og lýsis, eru þeir smám saman að öðlast æðri sess í vitund hins vestræna manns, eins og síauknar vinsældir hvalaskoðunar bera með sér.

Á meðal frumbyggja hefur hvölunum lengi verið sýnd mikil virðing en þar hafa þeir, ásamt því að vera veiddir til matar, jafnan gegnt mikilvægu hlutverki sem kennarar og fræðarar um raunveruleikann, eins og reyndar allt í náttúrunni. Hvalaskólinn hýsir þessa arfleifð en hvalirnir eru einstaklega vel til þess fallnir að vekja einstaklinginn til aukinnar meðvitundar um flókna veröld hafsins/lífsins og þann hnattræna veruleika sem allt líf byggir á. Í ljósi þessa hefur verið ráðist í þróun verkefnis fyrir grunnskólanema þar sem þeim er gefinn kostur á að komast í persónulegt samband við hvalina og að nema veröld þeirra með eigin athugunum. Skjálfandaflói er vettvangur verkefnisins en hann er viðkomustaður margra hvalategunda á sumrin og síðustu árin hefur risið þar öflug fræðslu- og upplifunarstarfsemi tengd hvölunum. Farið er með nemendurna á Hvalasafnið á Húsavík en þar hefur veröld hvalanna verið sett upp á nærgengilegan hátt. Þá er farið í leiðangur um flóann og þeim falið að tegundargreina þá hvali sem sjást og gera athuganir á umhverfi þeirra. Eftir heimsóknina í Hvalaskólann er nemendunum svo falið að vinna ýmiskonar verkefni tengdum hvölunum í samvinnu við sína grunnskólakennara. Markmiðið er að tengja Hvalaskólann öllum skólastigum og að taka á móti nemendum víðsvegar að.

 

 95.jpg

 Hér má fara inn á annann hvalavef: http://www.servefir.ruv.is/hvalir/index.html

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning