Umhverfisstígur við Laxá

Stígurinn er staðsettur rétt við Hraunsrétt, á bökkum Laxár í Aðaldal og ætti auðveldlega að nýtast skólum í Suður Þingeyjarsýslu, jafnvel víðar.
Á vef landmælinga Íslands má sjá vegakort af leiðinni. Ekið er frá Húsavík, suður veg 845, beygt til vinstri rétt sunnan við Hólmavað, inn á veg 853 og ekið að bænum Hrauni, þaðan er síðan hægt að komast niður að réttinni.
Umhverfisstígurinn við Laxá er skipulagður umhverfisstígur með 1 heimastöð og fullt af viðfnagsefnum þar sem megin áhersla er lögð á ýmsa þætti er lúta að útikennslu og útinámi, bæði fræðilega og með ýmsum áhugaverðum verkefnum. Kennslan er byggð á samþættingu náttúrufræða og annarra greina og miðuð við miðstig grunnskóla. Vel má útfæra stíginn fyrir eldri og yngri nemendur eða bæta við stíginn nýjum verkefnum.
Kíkið endilega á viðfnagsefni stígsins, þar má finna kennsluáætlanir og verkefni er fylgja hverju sifangsefni.
Þeir sem vilja kynna sér betur hvað umhverfisstígur er, bendi ég á að fara inn á svæði kennara og lesa sér til um umhverfisstíga almennt, markmið og hvernig hann nýtist best í kennslu.

