Heimastöð

 Varðeldur og leikir

 

Viðfangsefni: Kveikja varðeld og vinna með leik í starfi.


Aldur: Miðstig.


Námsgreinar:
Náttúrufræði, lífsleikni og íþróttir.


Tími:
Eftir hentugleika

 




Markmið

 Að nemendur

- læri að kveikja varðeld

- læri að umgangast eldinn og halda honum lifandi

- læri að taka þátt í ýmsum íþróttum og leikjum

- læri að búa til leiki

- læri að virða leikreglur

- efli félagsþroska, traust og virðingu

- njóti lífsins, öðlist gleði og ánægju.

 Stutt verkefnislýsing

 Kveikja upp lítinn varðeld í eldstæði og finna skemmtilega leiki.

 Kennslugögn

 Eldivið (grófan, fínan, spæni og pappír) og eldfæri. Blöð og skriffæri. Safnkassa undir leikina.  Plastaðar reglur.

 Framkvæmd / vinna

 Forvinna (undirbúningur / kveikja):  Nemendur spurðir hvort þeir hafi einhvern tíma kveikt eld og meðferð elds rædd. Fróðlegt umræðuefni gæti verið bruni og má spyrja nemendur hvort þeir hafi kannski einhvern tíma brennt sig og hvort þeir viti hvernig eigi að bregðast við bruna. Síðan eru nemendur spurðir hvort þeir kunni ekki einhverja leiki, því hver hópur þurfi að finna allavega einn leik.

 Fara yfir reglur í meðferð elds á berangri, rætt um og sýnt með teikningu hvernig bálköstur er búinn til (sjá verkefnablöð).

 Mæli ég með að kennarar sem ekki kunna að kveikja eld úti afli sér upplýsingar um hvernig fara skuli að. Á vefnum „Skoven i skolen” er farið vel í þessi atriði.

 Á vettvangi: Kennari aðstoðar nemendur við að kveikja upp lítinn varðeld í eldstæði, muna þarf að hreinsa eldstæðið og ganga úr skugga um að eldurinn geti ekki borist út í eldfimt umhverfi. Þeir hópar sem á eftir koma sjá um að halda eldinum lifandi og að hann berist ekki út. Ef áhugi er fyrir hendi má nýta eldinn til hitunar á nesti.

 Nemendur finna eða búa til einn leik sem þeir treysta sér til að stjórna og setja nafnið á honum í þar til gerðan kassa. Hér að neðan eru leikir sem grípa má til.

 Eftirvinna (úrvinnsla / ígrundun): Eldinn er hægt að nota til að vitna í af og til í náttúrufræði. Hann tengist t.d. hita og bruna og svo má nýta hann sem kveikju í myndlist og íslensku eða bara hvað hugurinn býður.

 Nemendur geta skráð leikina á tölvutæku formi og síðan má safna þeim saman og útbúa einskonar hugmyndabanka hér eða á heimasíðu skólans.

 Verkefni/vinnublöð

Vinnublað nemenda

Reglur ef kveikja á opinn eld

 Leikir

 Fyrst vil ég benda á efni á vefnum: „Leikjabankinn/leikjavefurinn"  og „Skoven i skolen

 En hér fyrir neðan eru útfærðir nokkrir vel þekktir leikir sem finna má víða í bókum og á netinu.

Dýraleikurinn

Blikkleikur

Það voru að koma skilaboð

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning