Umhverfisskólinn Maður og Jörð er þróunarverkefni sem miðar að því að gefa einstaklingnum aukin tækifæri á athafnatengdu útinámi á sinni skóla- og lífsgöngu þannig að hann geti þroskað með sér heildstæða náttúru- og samfélagsvitund. Undir hann heyra sérstæðir umhverfisskólar helgaðir tilteknum náttúru- og menningarfyrirbærum á norðurlandi. Laxárskólinn og Hvalaskólinn eru hugsaðir sem slíkir og hafa þeir nú þegar hafið göngu sína með þátttöku nemenda frá bæði Borgarhólsskóla á Húsavík og Hafralækjarskóla í Aðaldal. Með tíð og tíma eiga vonandi fleiri slíkir undirskólar eftir að líta dagsins ljós þannig að til verði heildstæður umhverfisskóli sem spannar fjölbreytni í náttúru- og menningarfari svæðisins ásamt því að ná til allra skólastiga. Hlutverk undirskólanna er einnig að bjóða einstaklingnum upp á val og sérhæfingu í samræmi við þarfir hans og áhugasvið.
Hér má sjá einn nemanda við að mæla straumhraða í Laxá.

